Þórður Barnapeysa
Þórður Barnapeysa
Þórður barnapeysa er prjónuð ofan frá og í hring með laskaútaukningu á berustykki og einföldu mynstri á bol.
Stærðir
6-12 mán (1-2 ára) 2-4 ára (4-6 ára) 6-8 ára (8-10 ára)
Ummál bols
Ca. 46 cm (51 cm) 54 cm (57 cm) 61 cm (64 cm)
ATH. vegna mynstursins á bolnum, sem er aðeins teygjanlegt, passar peysan ummáli barns sem er 1-2 cm víðara en uppgefið ummál í uppskriftinni.
Garn
Double Sunday frá Sandnes (50gr/108m)
200gr (200gr) 250gr (300gr) 350gr (400gr)
Athugið að ef annað garn er valið gæti það haft áhrif á garnmagn.
Prjónastærð
4mm og 4,5mm hringprjónar 40cm og/eða 60cm
4mm og 4,5 sokkaprjónar eða 60cm/80cm hringprjónn fyrir magic loop aðferðina
Prjónfesta
22L = 10cm í sléttprjóni á prjóna nr. 4,5
Annað sem þarf
Prjónamerki
Nál til frágangs
Hjálparband til að geyma ermalykkjur á
Uppskriftin sendist í PDF formi í gegnum tölvupóst.